expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Sunday, February 17, 2013

Súkkulaðiostakaka með Kit Kat

 Hello Kit Kat Lovers!

Ég fann þessa uppskrift á netinu og breytti henni aðeins og útkoman varð þessi!! sjúklega góðir súkkulaðiostaköku bitar með Kit Kat og hvítu súkkulaði.

Það er eiginlega skilda að skella í eina uppskrift af þessum, svo eru þær svo ótrúlega flottar á borði því kit katið kemur svo skemmtilega út þegar maður sker kökuna í bita. 

Kit Kat er klassískt súkkulaði og er það talið eitt af vinsælusta súkkulaði í heimi, það borða einhvern vegin allir Kit Kat og það gefur alveg gæfu muninn í þessari köku.





Súkkulaðiostaköku bitar með KitKat

Undirbúningstími 90 mín.

Botn
225 gr. hafrakex
120 gr. sykur
120 gr. smjör

Setjið hafrakex og sykur í matvinnsluvél þar til kexið er orðið að fínni blöndu. Bræðið smjörið og blandið saman við með sleif. Setjið í eldfastmót 20x20 eða meðalstórt form og þrýstið hafrakexblöndunni vel ofan í botninn. Gott að setja smjörpappír í botninn á forminu svo auðvelt sé að ná kökunni upp úr. Bakið í 10 mín. við 180 gráðu hita. Kælið alveg.

Súkkulaðiostakaka
370 gr. rjómaostur
95 gr. dökkt kakó
90 gr. sykur
2 egg
7 kitkat pakkar

  1. Raðið öllu kitkatinu jafnt og þétt ofan á hafrakexbotninn.
  2. Þeytið saman rjómaostinn, kakókið, sykurinn og eggin þar til blandan verður orðin létt í sér og allt hefur blandast vel saman.
  3. Setjið rjómaostablönduna yfir kitkatið, það þarf að smyrja blöndunni yfir kitkatið því hún er örlítið þykk. Dreifið varlega úr rjómaostablöndunni með sleif.
  4.  Bakið í 35 mín. við 180 gráðu hita. Kælið.

Súkkulaði ofan á.
300 gr. dökkt súkkulaði
130 gr. smjör

Bræðið súkkulaðið og smjörið yfir vatnsbaði og hellið því yfir kælda ostakökuna.

Skreytið með bræddu hvítu súkkulaði.
100 gr. hvítt súkkulaði
30 gr. kókosolía eða smjör.

Bræðið yfir vatnsbaði og skreytið af vild.

Þegar súkkulaðið hefur náð að storkna ofan á kökunni er hún skorin í bita.






Þessar elskur voru einnig á heimasíðu home & delicious 


Verði ykkur að góðu!

Thelma

No comments:

Post a Comment