expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Friday, January 18, 2013

Epla og karamellu bollakökur

 
Uppskriftin af þessum unaðslegu bollakökum birtist í jólablaði Home & Delicious. Það er eitthvað við epli og kanil sem minnir mig svo á jólin og ég tala nú ekki um lyktina sem angar um húsið þegar þær töfrast í ofninum! Rjómaostakremið er svo fullkomið á móti sæta bragðinu af kökunum og karamellunni og tilvalið er að skreyta þær með hökkuðum heslihnetum eða súkkulaðispænum.
 
Þessar bollakökur henta þó við hvaða tækifæri sem er! Hvet ykkur einnig að kíkja á Home & Delicious blaðið þið sem hafið ekki gert það nú þegar, alltaf gott að detta inn í draumaheim á netinu af og til með góða bollaköku við hönd.
 
 
 
Mynd eftir Gunnar Sverrisson
 
Epla og karamellu bollakökur

Kökur innihald


 

475 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
½ tsk maldon salt
225 g smjör við stofuhita
400 g sykur
4 stk egg við stofuhita
80 ml heitt vatn
4 stk meðalstór epli rifin niður
2 tsk kanill
 
Vanillu rjómaostakrem innihald
60 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar (1-2 tsk)
180 g rjómaostur við stofuhita
 
Karamella innihald
200 g sykur
6 msk. smjör
1 dl. rjómi við stofuhita
 
 
Kökur aðferð:
  1. Hitið ofninn í 180 gráður og raðaðu formum á bakka.
  2. Blandaðu saman hveiti, lyftidufti, kanil og salti í skál.
  3. Settu smjörið í skál og hrærðu þar til smjörið verður mjúkt og fínt, bættu því næst sykrinum saman við og hrærðu vel saman í u.þ.b. 3 mínútur.
  4. Bættu einu eggi saman við í einu og hrærðu vel á milli.
  5. Bættu svo við smá af hveitiblöndunni og smá af heita vatninu saman við og hrærið á litlum hraða og bætið svo restinni saman við. Það er mikilvægt að blanda hveitinu og vatninu smá og smá saman við svo að það sé ekki of mikið álag á deiginu, þá getur það orðið seigt.
  6. Blandaðu rifnu eplunum saman við varlega með sleif.
  7. Settu deigið í formin og fylltu þau u.þ.b. 2/3.
  8. Bakaðu kökurnar í u.þ.b. 18-22 mínútur.
  9. Kældu kökurnar í u.þ.b. 20 mínútur, eftir að þú tekur þær úr ofninum.
  10. Skerðu innan úr miðjunni á hverri köku til þess að fylla hana af karamellu.


Vanillu rjómaostakrem aðferð:
Settu allt saman í skál og hrærðu þar til blandan verður mjúk og létt. Gott er að hræra á miklum hraða síðustu 2 mínúturnar.
 Karamella aðferð:
  1. Setjið sykurinn í pott undir meðalháan hita og hrærið vel í þangað til hann er vel bráðnaður og orðin örlítið dökkur.
  2. Bætið smjörinu saman við og hrærið vel.
  3. Takið af hellunni og bætið rjómanum saman við og hrærið þangað til blandan er orðin mjúk og fín. Kælið inn í ísskáp í u.þ.b. 15 mínútur.
  4. Sprautið svo karamellunni ofan í hverja bollaköku fyrir sig, setjið kremið á og skreytið með restinni af karamellunni.

 
Verði ykkur að góðu!
 
Thelma

No comments:

Post a Comment