expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Wednesday, April 1, 2015

Sælgætisís Nóa


Ís er bráðnauðsynlegur þegar kemur að hátíðisdögum. Ég býð alltaf upp á heimatilbúinn ís á jólum, áramótum og páskum. Það er bara eitthvað svo hátíðlegt við heimatilbúinn ís og ég geri hann yfirleitt aldrei við nein önnur tækifæri. Mér finnst gaman að prófa nýjann ís við hvert skipti og auðvelt er að leika sér með það sem maður blandar saman við ísblönduna. Þessi ís vakti mikla lukku hér hjá fjölskyldunni og sérstaklega hjá yngri kynslóðinni. Það er ekki nauðsynlegt að skreyta hann með ísformum en það gerir hann alveg einstaklega skemmtilegan. Það er ekki auðvelt að fá svona ísform svo ef þau eru ekki til í búðinni þá fer ég bara út í ísbúð og fæ að kaupa nokkur. Þau fást þó helst í Hagkaup og þegar ég sé að þau eru til þá hamstra ég eins og enginn sé morgundagurinn!! Ég nota þau nefnilega líka til að baka bollakökur í fyrir krakkana og þegar við kaupum tilbúnn ís að setja eina kúlu ofan í, það vekur mikla lukku.

Þessi ís er einstaklega páskalegur því hann er svo litríkur! Ekki veitir af smá litum í líf okkar eftir þennan vetur! 



Sælgætisís Nóa

Innihald
6 egg
6 msk sykur
120 g púðursykur
4 tsk vanilludropar
150 g tromp
100 g dökkt konsum súkkulaði
150 g lakkrískurl
7 dl rjómi

Skraut
100 g súkkulaðiperlur
4-5 stk ísfrom
2,5 dl rjómi

Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykri varlega saman við með sleif. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleif þar til allt hefur blandast vel saman. Grófsaxið súkkulaði og tromp og blandið því saman við ísblönduna ásamt lakkrískurlinu. Blandið því næst vanilludropunum saman við. Þeir sem vilja geta þeytt eggjahvíturnar og blandað saman við ísinn svo það verði meira úr honum eða geymt þær til annarra nota. Hellið ísblöndunni í hringlaga kökuform og frystið í lágmark 5 klukkustundir. Takið ísinn úr kökuforminu og setjið á disk. Skerið ísformin í tvennt og raðið þeim í kringum ískökuna. Þeytið rjóma og sprautið honum ofan í hvert ísform fyrir sig. Skreytið með súkkulaðiperlum. Ísinn geymist í frysti í allt að 3 mánuði.



Verði ykkur að góðu og gleðilega páska!

Kveðja
Thelma

No comments:

Post a Comment