
Bananamúffur með kanil
Ca 14
stk – undirbúningur 10 mín. – bökunartími 15 mín.
Innihald
200
g hveiti
1
tsk lyftiduft
1
tsk matarsódi
1
tsk kanill
½ tsk
salt
3 vel
þroskaðir bananar
160
g sykur
1
egg
1
tsk vanilludropar
120
g smjör
Toppur
50 g
sykur
2
tsk kanill
Aðferð
- Stillið ofninn á 180 gráður og setjið muffinsform ofan í bökunarform og setjið á ofnplötu.
- Blandið öllum þurrefnum saman í skál og hrærið vel.
- Setjið banana, sykur, egg, vanilludropa og bráðið smjör saman í skál og hrærið vel saman.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við og hrærið þanað til allt hefur blandast vel saman. Passið ykkur að hræra alls ekki of mikið svo kökurnar verði ekki segiar.
- Setjið deigið í bökunarformin, ca. 2 msk í hvert fom.
- Stráið 1 msk af kanilsykri yfir hverja köku og hrærið því saman við með tannstöngli.
- Bakið kökurnar í 15 mínútur.
No comments:
Post a Comment