expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Wednesday, January 23, 2013

Súkkulaði og pecanhnetu ískaka með karamellu


Þessa uppskrift var ég með í hátíðarmatarblaði Vikunnar sem kom út í nóvember. Þessi ísterta var eftirréttur fjölskyldunnar á aðfangadag, hún er unaðslega góð, einföld og fljótleg! (fyrir utan 5 tíma í frysti!!)


Til að fá hana sem fallegasta í laginu er best að nota meðalstórt hringlaga smelluform því þá er svo auðvelt að taka kökuna úr forminu og færa yfir á fallegan disk sem þú vilt bera hana fram á. Best er að láta kökuna þiðna örlítið, samt ekki of lengi, setja beittan hníf undir botninn þannig að kakan verði laus og vippa henni svo yfir á disk. Svo er bara hægt að láta hugmyndunaraflið fara af stað hvað varðar skreytingar ofan á. Auðvelt er t.d. að skrifa nafn á kökuna með karamellusósunni (best að setja hana aðeins í heitt vatn áður) ef t.d. á að bera fram sem afmælisköku.

Tips frá Mr. Handsome: gott að borða með slatta af þeyttum rjóma!






Súkkulaði og pecanhnetu ísterta
6 egg
6 msk. sykur
100 gr. bráðið mars með 5 msk. rjóma
7 dl. rjómi
2 tsk. vanilludropar
150 gr. suðusúkkulaði dökkt/ljóst eftir smekk skorið niður í litla bita.
100 gr. H- Berg pecanhnetur skornar mjög smátt.
100 gr. H-Berg heslihnetur hakkaðar
60 gr. karamellusíróp og aðeins meira til skrauts (ég notaði karamellusósu Rikku)

Þeytið eggjarauðurnar saman við sykurinn þangað til blandan er orðin ljós og létt, hellið svo bráðnuðu marsi saman við. Þeytið síðan rjómann og blandið honum varlega saman við blönduna, ásamt súkkulaðinu, pecanhnetunum og vanilludropunum. Stífþeytið því næst eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við allt saman. Settu hakkaðar heslihnetur í botninn á meðalstóru kökuformi, heltu svo blöndunni yfir, heltu karamellusírópinu yfir og blandaðu því saman við með því að snúa hníf í nokkrar hringi í gegnum ísinn, passaðu þig að fara ekki of nálægt botninum til að fara ekki í hneturnar í botninum. Frystu í lágmark 5 klst. Þegar ísinn er orðinn vel frosinn er hann tekinn úr kökuforminu og settur á disk, raðaðu pekanhnetunum ofan á og skreyttu með karamellusírópi.


Verði ykkur að góðu!

Thelma


No comments:

Post a Comment