Ætla að deila með ykkur sjúklega góðri köku, marengs súkkulaðidraum sem ég setti inn á bloggið hjá Gott í Matinn um daginn og sló algjörlega í gegn. Þetta er algjör bomba! en svoooo þess virði :)
Marengs súkkulaðidraumur
Þessa köku gerði ég fyrir Eurovision partí
fjölskyldunnar. Ég gat hreinlega ekki ákveðið hvort ég ætti að gera djúsí
súkkulaðiköku eða marengs köku svo ég bakaði bara bæði og skellti þeim saman
ásamt ýmsu gúmmelaði á milli. Kakan vakti mikla lukku og fannst þeim hún ennþá
betri daginn eftir! Þetta er algjör draumur sem slær allt út þegar þið fáið
þörf fyrir eitthvað sætt, djúsí og ógleymanlega gott!
Súkkulaðibotn
225 sykur
110 hveiti
24 g. dökkt kakó
1 tsk. matarsódi
½ tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
1 egg
180 ml. súrmjólk
60 ml. olía
1 tsk. vanilludropar
2 msk. kaffi
Aðferð
Blandið saman sykri, hveiti, kakói,
matarsóda, lyftidufti og salti í skál. Blandið eggjunum saman við og hrærið léttilega,
setjið svo strax súrmjólkina og olíuna saman við og hrærið léttilega. Setjið
því næst kaffið og vanilludropana saman við og hrærið á meðal hraða þar til
allt hefur blandast vel saman. Passið ykkur að hræra ekki of lengi því þá getur
kakan orðið seig. Deigið er mjög þunnt í sér. Hellið deiginu í smurt meðalstórt
hringlaga bökunarform og bakið við 180 gráður í rúmar 30 mín. eða þar til
tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Kælið kökuna.
Súkkulaðikrem
3 eggjarauður
(geymið eggjahvíturnar í marengsinn)
100 g. flórsykur
30 g. smjör
150 g. dökkt súkkulaði
1 tsk. vanilludropar
Aðferð
Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman
þar til blandan er orðin ljós og létt. Bræðið súkkulaðið ásamt smjörinu í potti
yfir meðal hita og blandið svo saman við blönduna, bætið vanilludropum saman
við. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
Gott er að láta súkkulaðikremið standa í smá
stund áður en það er sett á kökuna. Smyrjið kreminu yfir kökuna og á hliðar
hennar.
Fyrir þá sem vilja bara súkkulaðiköku þá
geti þið annað hvort bara haft súkkulaðikremið á kökunni, raðað jarðaberjum á
kökuna eða sett bæði jarðaber og oreo kex. En þeir sem vilja eitthvað aðeins
meira bæta við rjómanum og marengs botninum.
Þegar súkkulaðið er komið ofan á kökuna þá
setti ég á milli
1 litla öskju af jarðaberjum skorin niður
8 stk. oreo kex
½ lítra rjóma
Serið jarðaberin niður í sneiðar og raðið
fallega á kökuna, geymið restina svo til þess að setja ofan á kökuna. Skerið
Oreo kexið gróft niður og dreifið yfir jarðaberin. Þeytið rjómann og smyrjið
honum yfir allt. Setjið Marengs botninn ofan á og skreytið af vild, ég setti
afganginn af jarðaberjunum og bræddi örlítið súkkulaði í potti ca. 40. g. af
dökku súkkulaði.
Marengs
3 stk. eggjahvítur
170 g. sykur
½ tsk. lyftiduft
40 g. rice crispies
Aðferð
Til þess að marengs heppnist þá þarf að
passa það að skálin sé mjög hrein annars gæti hann fallið.
Hrærið eggjahvíturnar og sykurinn saman
þangað til blandan er orðin stíf. Bætið lyftiduftinu saman við og hrærið
vel. Bætið rice crispies saman við og
hrærið varlega saman með sleif.
Setjið smjörpappír á bökunarplötu, takið
formið sem þið bökuðuð súkkulaðikökuna í og dragið hring á smjörpappírinn.
Dreifið úr marengsinum á hringinn og reynið að fara ekki útfyrir línurnar.
Bakið við 150 gráðu hita í rúmar 40 til 50
mín. eða þar til marengsinn er þurr viðkomu. Kælið.
Þangað til næst!
Thelma
Er Þetta kaka sem maður setur saman samdægurs eða kvöldið áður ?
ReplyDelete