expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Friday, August 5, 2016

Bökuð epli með kanil og karamellu


Bökuð epli með kanil og karamellu



Innihald
500 g Skyr.is með bökuðum eplum
¼ lítri rjómi
1 msk kúfuð af flórsykri
¼ tsk kanill
10 stk Lu kanilkex
100 g H-berg ristaðar karamelluhnetur
Toppur
¼ lítri rjómi
100 g karamellu Pipp brætt með 3 msk af rjóma

Aðferð
Þeytið rjóma og blandið ¼ lítra saman við skyrið og hrærið vel. Bætið flórsykri saman við ásamt kanil og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman. Setjið kanilkexið og ristuðu karamelluhneturnar í matvinnsluvél og hakkið gróflega. Setjið 1-2 msk af kexi í hvert glas fyrir sig, setjið skyrblönduna í poka og sprautið ofan á kexið.

Toppur
Bræðið karamellu Pipp yfir lágum hita ásamt 3 msk af rjóma og hrærið stanslaust þar til Pippið hefur náð að bráðna alveg. Kælið örlítið. Sprautið restinni af rjómanum ofan á og setjið ca. 1 msk af brædda karamellu Pippinu yfir rjómann og skreytið með restinni af kex og hentublöndunni. Geymið í kæli þar til borið er fram. 

Uppskriftina er hægt að nálgast á vef Gott í matinn og þar er hægt að margfalda hana að vild.

Kveðja, Thelma

No comments:

Post a Comment