Hérna kemur næsta uppskrift sem inniheldur rommrúsínurnar góðu! Hafraklattar með rommrúsínum og hvítu súkkulaði ! Njótið!
Hafraklattar
með rommrúsínum
Undirbúningstími 60 mín. bakið við 180 gráður. Ca. 24 kökur.
Bökunartími 10 – 12 mín.
120 g. Smjör við stofuhita
130 g. Ljós púðursykur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
100 g. Hveiti
½ tsk. matarsódi
1 tsk. kanill
¼ tsk. maldon salt
125 g. Gróft haframjöl
100 g. Dökkt súkkulaði skorið niður í grófa bita
100 g. H-berg rommrúsínur skornar smátt niður
50 g. Hvítt súkkulaði
Smá smjör
- hitið ofninn í 180 gráður.
- Blandið saman hveiti, matarsóda, kanil og salti saman í skál og setjið til hliðar.
- Blandið smjöri, púðursykri, eggi og vanilludropum saman og hrærið þar til blandan verður mjúk og létt. Hrærið því næst hveitiblönduna saman við.
- Bætið saman við haframjöli, súkkulaðibitum og rommrúsínum og hrærið á litlum hraða þangað til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið deigið í skál og kælið í 30 mín.
- Búið til kúlur úr deiginu og setjið á bökunarplötu með smjörpappír, hafið gott bil á milli þar sem kökurnar fletjast út. Bakið í 10 til 12 mín.
- Kælið kökurnar áður en þið takið þær af bökunarplötunni þar sem þær eru frekar mjúkar þegar þær koma úr ofninum.
- Setjið bráðið hvítt súkkulaði yfir kökurnar.
Kveðja
Thelma
No comments:
Post a Comment