Welcome to Heaven!!
Hvernig hljómar heimatilbúið Snickers?? ég fór með þessa í vinnuna og þeir voru ekki lengi að hverfa....hef einn grunaðan, Geir??
Þessir bitar bráðna í munninum á þér og er hver calorian þess virði!
Hafðu tilbúinn pakka sem þú ætlar að gera snickers bitana í, ég notaði
einnota álform og setti smjörpappír í botninn svo auðvelt var að vippa þessu
upp úr í heilu lagi áður en það er skorið niður í bita.
1. lag
300 gr. mjólkursúkkulaði
60 gr. hnetusmjör
Skerðu mjólkursúkkulaðið í bita og bræddu það í potti ásamt hnetusmjörinu.
Helltu súkkulaðinu í formið og láttu kólna alveg.
2. lag
60 gr. smjör
200 gr. sykur
60 ml. sæt mjólk
(condenced milk fæst í kosti) einnig hægt að nota g-mjólk
1 dolla
Marsmallow fluff (fæst í Hagkaup og kosti, einnig hægt að búa til heimatilbúið marsmallow fluff)
60 gr.
hnetusmjör
200 gr.
salthnetur skornar gróft
1 tsk. vanilludropar
Bræðið
smjörið í potti og bæti svo sykrinum og mjólkinni saman við, hrærið þangað til
sykurinn hefur leysts upp, látið malla í rúmlega 5 mín. passið að hræra oft á
milli svo sykurinn brenni ekki.
Bætið því
næst Marsmallow fluffinu, hnetusmjörinu og vanilludropunum saman við. Hrærið þangað
til allt hefur blandast vel saman.
Takið pottinn
af hellunni og bæti salthnetunum saman við. Hellið blöndunni yfir súkkulaðið og
kælið alveg.
3. lag
400 gr.
freyju karamellur
60 ml. rjómi
Bræðið
karamellurnar ásamt rjómanum í potti yfir meðal háum hita, hrærið þangað til
karamellurnar hafa bráðnað alveg.
Hellið yfir
og kælið vel.
4. lag
150 gr. dökkt
súkkulaði
150 gr. mjólkursúkkulaði
60 gr.
hnetumsjör
Skerðu súkkulaðið
í grófa bita og bræddu í potti ásamt hnetusmjörinu. Helltu yfir karamellurnar
og kælið í minnst 1 klst. þangað til þið skerið í bita.
Ég setti
þetta inn í ísskáp á meðan ég undirbjó það sem átti að koma næst. Gott er að
geyma í ísskápnum þangað til þetta er borið fram því að karamellan vill leka út.
Verði ykkur að góðu!
Thelma
No comments:
Post a Comment